2 of 2
Glæpasögur
Eitur er önnur bókin í glæpasagnaflokknum um tvíeykið Dóru og Rado, harðsoðinn hörkukrimmi sem fjallar á raunsannan hátt um myrkar hliðar Reykjavíkur samtímans. Fyrsta bókin, Brotin, fékk afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og mun koma út í Þýskalandi á næsta ári. Einnig eru í bígerð sjónvarpsþættir byggðir á sögunni.
Tökur á erlendum sjónvarpsþáttum standa sem hæst í kvikmyndaverinu í Gufunesi þegar illa farið lík finnst innan í leikmyndinni. Hinn látni reynist vera sambýlismaður lögregluforingjans Elliða, sem setur málið umsvifalaust í hendur þeim sem hann treystir best: Utangarðslöggunum og ólíkindatólunum Dóru og Rado.
Brátt verður ljóst að málið tengist nýjum og banvænum fentanýl-töflum sem bráðliggur á að uppræta. Dóra og Rado leggja því upp í skuggalegt ferðalag um undirheima Reykjavíkur þar sem ópíóðar hafa gerbreytt landslaginu á síðustu árum. En sjálf hafa þau sína djöfla að draga: Dóra heyr baráttu við verkjalyfjafíkn og Rado á bágt með að hrista fortíðina af sér.
© 2024 JPV (Hljóðbók): 9789935295187
© 2024 JPV (Rafbók): 9789935295132
Útgáfudagur
Hljóðbók: 15 juni 2024
Rafbók: 15 juni 2024

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Engar umsagnir komnar
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Íslenska
Ísland