4
1 of 8
Glæpasögur
Vegna hins góða orðspors sem fer af Hjaltlandseyjum ákveður ensk fjölskylda að flytja þangað með það fyrir augum að skapa betri aðstæður til að ala upp einhverfan son sinn. En þegar lík ungrar barnfóstru drengsins finnst hangandi í hlöðunni við heimilið fara á flug sögusagnir um að barnfóstran og heimilisfaðirinn hafi átt í ástarsambandi. Rannsóknin á dauða barnfóstrunnar reynir mjög á lögreguforingjann Jimmy Perez, ekki síst vegna skrykkjótts ástarsambands hans við Willow Reeves, stjóra morðdeildarinnar. Er Perez tilbúinn að takast á við það sem koma skal? Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda. Eldhiti er áttunda og lokabókin í Shetlands-seríunni. „Snjall söguþráður, sterk persónusköpun og meistaralegar landslagslýsingar gera þessa bók að glæsilegum endi á frábærri seríu.“ – Guardian „A tour de force – snilldarverk.“ – Kirkus Review „Cleeves er ... hin nýja drottning sakamálasagnanna.“ – Sunday Mirror
© 2024 Ugla útgáfa (Hljóðbók): 9789935219077
© 2024 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935216779
Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 24 mars 2024
Rafbók: 24 mars 2024

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 74 stjörnugjöfum
Spennandi
Mögnuð
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 74
Elsa
26 mars 2024
Frábær spennandi og lestur góður
Oddbjörg
28 mars 2024
Spennandi og vel lesin
Guðlaug
27 mars 2024
Fantagóð glæpasaga, eins og vænta mátti úr penna Ann Cleeves. Lestur Jóhanns Sigurðarsonar hreint frábær að vanda. Hlakka til næstu bókar í Shetlandseyjaseríunni.
Árndís Alda
18 apr. 2024
Mjög góð bók
Guðrún
15 apr. 2024
Jeminn... þegar ég var búin að hlusta á hann tala um skó í hálftíma .. þá gafst ég endanlega upp. Les vel en bókin er bara svo sjúklega langdregin ...jedúdamía ... eins og þær eru margar góðar eftir þennan höfund. Svekkelsi.is
Jóhanna
17 apr. 2024
Góð saga og lesturinn mjög góður 👍
G
30 mars 2024
Spennandi til enda og lesarinn klikkar aldrei
Ásdís
5 apr. 2024
Langdregin og ruglingsleg á köflum. Góður lesari en var á köflum full lágvær svo ég heyrði ekki nógu vel.
Jóhanna
30 mars 2024
Spennandi bók, sem fer hægt áfram en hélt mér allan tímann, eins og bækur Ann Cleeves gera alltaf. Lesturinn mjög góður.
Lilja Hafdís
4 apr. 2024
Þessi er fín og lestur frábær 🏆
Íslenska
Ísland