4.6
9 of 29
Óskáldað efni
Þegar millilandaflugvélin Geysir, glæsilegasta flugvél Íslendinga, svarar ekki k-llum loftskeytamanna og lendir ekki í reykjavík á tilsettum tíma í september 1950 sækir ótti að fólki. Um borð eru sex manna áhöfn, átján hundar og lúxusvarningur sem flytja á frá Lúxemborg til New York. Hvar er vélin? Þegar síðast heyrðist frá henni var hún skammt frá Vestmannaeyjum.
Eftir að vélarinnar hefur verið saknað í rúma fjóra sólarhringa hafa aðstandendur og flestir landsmenn gefið upp vonina um að áhöfnin sé á lífi. Umfangsmikil leit á sjó, lofti og landi skilar engum árangri. Samúðarblóm hafa borist víða að og fólk er fraið að skrifa minningargreinar. Þá heyrist ógreinileg morssending. Loftskeytamaður á varðskipinu Ægi, sem statt er austur af Langanesi, heyrir ógreinilega: “staðaráakvörðun ókunn … allir á lífi”. Við tekur atburðarás sem á sér enga hliðstæðu.
Fólk grætur af gleði á götum Reykjavíkur þegar fréttist að áhöfn flúgvélarinnar sé á lífi. Vaskir fjallagarpar frá Akureyri og Reykjavík halda af stað í skyndi með takmarkaðan búnað á Willys-jeppum og vörubíl frá höfuðstað Norðurlands til bjargar fókinu. Ákvörðunarstaður er í rúmlega 1800 metra hæð – Bárðabunga á Vatnajökli. Tilraunir bandarískra hermanna til að bjarga fólkinu af jöklinum í flugvél mistakast. Þjóðin leggur allt sitt traust á íslenska björgunarleiðangurinn. Margir mannanna gengu 70-80 km á jökli, nánast hvíldarlaust, eftir að hafa ekið lítt kannaða öræfaleið, yfir hættuleg vatnsföll og úfin hraun.
© 2006 Hljóðbók.is (Hljóðbók): 9789979784173
Útgáfudagur
Hljóðbók: 1 januari 2006

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 289 stjörnugjöfum
Mögnuð
Upplýsandi
Hjartahlý
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 6 af 289
Dagmar Vigdis
20 dec. 2021
Mjög vel lesin 🙂 svakalega spennandi
Ragnheiður
21 jan. 2023
Þvílíkt þrekvirki
Elinborg
2 okt. 2021
Frabært folk
Helga Aminoff
16 nov. 2021
Manni verður orðavant..Frábær flutningur....það komu tár á vanga . Takk
Dýrleif
22 maj 2018
gúgúgaga ndjdudj b vd
Guðlaug
4 mars 2024
Fróðleg frásögn af ótrúlegum svaðilförum, seiglu og hetjudáð.
Íslenska
Ísland