4.2
Skáldsögur
Litrík og spennandi söguleg skáldsaga sem gerist við fyrstu konungskomu til Íslands 1874. Ung stúlka finnst myrt á komudegi konungs og barn hennar er horfið. Rannsókn málsins verður að fara fram í kyrrþey svo ekki hljótist hneykslan af og sjá Jón Borgfjörð, lögregluþjónn bæjarins, og Jón Hjaltalín, landlæknir, um hana. Þeim til fulltingis er skólapilturinn og sögumaður bókarinnar, Móritz. Við sögu kemur fjöldi þjóðþekktra manna, svo sem Matthías Jochumsson, Sigurður málari, Steingrímur Thorsteinsson, Gestur Pálsson og Sæfinnur á sextán skóm. Bókin hlaut Blóðdropann – verðlaun Hins íslenska glæpafélags árið 2010.
Helgi Ingólfsson (f. 1957), rithöfundur og menntaskólakennari, hefur skrifað um tug skáldsagna, auk ljóðabóka, smásagnasafns og annarra bóka. Meðal skáldsagna hans eru Letrað í vindinn – Samsærið sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 1994 og gamansagan Andsælis á auðnuhjólinu, en eftir þeirri bók var gerð kvikmyndin Jóhannes með Ladda í aðalhlutverki.
„Ein albesta íslenska skáldsaga síðustu ára ... Heillandi skáldverk sem sogar lesandann inn í hugarheim 19. aldar og heldur honum þar föngnum ... Lesandanum finnst hann vera lentur í tímavél ...“ – Hallgrímur Helgason „Stórskemmtileg bók – spennandi morðgáta.“ – Sigurður G. Tómasson „Frumlegasti krimminn ... vel samin ... og frábærlega undirbyggð saga með merkilegri mannlífslýsingu ... bregður leiftrandi ljósi á Reykjavík og bæjarbúa þessa tíma.“ – Páll Baldvin Baldvinsson
© 2022 Ugla útgáfa (Hljóðbók): 9789935217561
© 2022 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935216212
Útgáfudagur
Hljóðbók: 14 juli 2022
Rafbók: 14 augusti 2022

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 127 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Mögnuð
Hugvekjandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 127
Guðlaug
11 okt. 2022
Meistarastykki, þessi bók og fantavel skrifuð. Skrautlegt persónugalleríið er alveg kostulegt og ekki skemmir ískrandi húmorinn, latínu-, dönsku- og þýskusletturnar. Reykjavík gamla tímans, með allri sinni stéttaskiptingu, bókstaflega lifnar við svo maður finnur lyktina, veður forina og verður hluti af mannlífinu. Lestur Jóhanns er hreint afbragð. Takk. 👏🏻👏🏻👏🏻👏🏻
Guðrún
20 maj 2023
Mjög góð og fræðandi, Jóhann einn af mínum uppáhalds lestum sem gerir söguna enn áhrifameiri.
Heiðar Birnir
23 jan. 2023
Með betri sögum og frábær lestur
Ása Birna
24 sep. 2023
Fróðleg, skemmtileg og spennandi. Trúverðug lýsing á lífinu í Reykjavík á seinni hluta nítjándu aldar. Gamla kjarnyrta íslenskan og hljómar sérlega vel í frábærum lestri Jóhanns Sigurðarsonar.
G
12 juni 2023
Bók að mínu skapi. Frábær og lesturinn að sjálfsögðu frábær
Kristín
24 jan. 2023
Vel skrifuð og skemmtilega lesin
Snæbjörn
26 juli 2022
Frábær bók og snilldar lestur
Stefanía
25 nov. 2022
Fræðandi og vel lesin. Hef einnig lesið bókina um Morits sem var skemmtileg
Sjöfn
21 juli 2022
Mjög góð og vel lesið. Næst er að gera kvikmyndahandrit....sagan tilvalin til þess.8
Guðrún
25 apr. 2024
Innilega sammála þeim sem hafa sagt álit sitt á bókinni og upplestrinum. Ánægjustundir að hlusta á söguna
Íslenska
Ísland