Þúsundir raf- og hljóðbóka í símann þinn. Prófaðu frítt í 3 daga, engin skuldbinding og þú getur sagt upp hvenær sem er.
Prófa frítt4
11 of 56
Barnabækur
Gamla konu dreymir um að eignast litla dóttur og þegar galdranorn útvegar henni byggkornið sem úr skríður stúlkan Þumalína verður hún himinsæl. Þumalína litla er ekki stærri en þumall, og unir hag sínum vel á eldhúsborði konunnar, þar sem hún leikur sér í vatnsdiski og sefur í ofurlítilli valhnetuskurn.
En ekki fær anginn litli lengi að lifa eins og blómi í eggi. Hræðileg froskpadda verður hennar vör og sér í henni ákjósanlega brúði handa syni sínum, sem bæði er ógeðfelldur og illa talandi. Paddan bregður á það ráð að nema Þumalínu á brott, með sæng og öllu saman. Þetta er þó bara upphaf þeirra hrakninga sem bíða stúlkunnar litlu, sem á eftir að flækjast um heiminn og standa frammi fyrir fleiri en einu óspennandi bónorðum.
Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.
H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Í „Þumalínu" fara saman fegurð og ljótleiki náttúrunnar, þar sem viðkvæmni hins smáa er í fyrirrúmi. Þumalína er tákn fyrir allar þær konur sem gefnar hafa verið í hjónaband gegn vilja sínum, en líka vonarstjarna þar sem henni tekst að brjótast gegn örlögum sínum og snúa gæfunni sér í vil.
© 2019 SAGA Egmont (Hljóðbók): 9788726238105
© 2020 SAGA Egmont (Rafbók): 9788726237887
Þýðandi: Steingrímur Thorsteinsson
Útgáfudagur
Hljóðbók: 20 december 2019
Rafbók: 11 februari 2020
4

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 30 stjörnugjöfum
Hjartahlý
Notaleg
Snjöll
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Íslenska
Ísland