4
Skáldsögur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Klöru Ósk Viðarsdóttur Smith, 15 ára. Hún er 165 cm á hæð, 56 kg, grannvaxin, með blá augu og sítt ljóst hár. Slíkar tilkynningar berast Síðdegisblaðinu oftar en blaðamennirnir hafa tölu á. Unglingar hverfa eða láta sig hverfa. Stundum eru þetta sömu andlitin hvað eftir annað og þá fyllast samskiptamiðlar af kaldlyndum skömmum út í allt og alla. Af hverju hefur enginn kontról á þessu liði? Ljósmyndin af stúlkunni sem lýst er eftir snertir viðkvæma strengi í brjósti Einars blaðamanns. Eitthvað í svipnum minnir hann á hans eigin dóttur þegar hún var yngri og saklausari. En nú er Gunnsa sest við hlið föður síns á Síðdegisblaðinu og vill fá að rannsaka sögu horfnu unglinganna. Hún nær sambandi við Klöru Ósk á Facebook og þær mæla sér mót – eða er það ekki svo? Árni Þórarinsson hefur ritað hörkuspennandi sögu úr íslenskum samtíma og lýsir af stílgáfu og næmi þeirri spillingu sem leynist í hversdagslífinu, heimi hákarla og hornsíla.
© 2021 JPV (Hljóðbók): 9789935292704
© 2021 JPV (Rafbók): 9789935116932
Útgáfudagur
Hljóðbók: 26 december 2021
Rafbók: 26 december 2021

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 683 stjörnugjöfum
Spennandi
Mögnuð
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 683
Nína Margrét
8 jan. 2022
Geggjuð bók og frábær lestur að vanda hjá Hjálmari leikara 👌🙂 það versta við bókina er - að hún kláraðist.
Heiða
27 dec. 2021
Snillingur
Gummi
11 jan. 2022
Flott framhald fyrri bóka og fínn lestur
Linda Linnet
28 apr. 2023
Frábær bók og lesari góður.
G
27 dec. 2022
Hjálmar alltaf jafn góður lesari. Bókin spennandi
Ingibörg
31 jan. 2022
Vel lesin
Ragnheiður
30 dec. 2021
Frábær bók í frábærum lestri Hjálmars
Þórunn
15 feb. 2022
Mjög góð bók frábær lestur
Brynjólfur
2 feb. 2022
Vel lesin af Hjálmari
Valþór Freyr
8 jan. 2022
Alveg frábær eins og allar bækur Árna um Einar blaðamann.
Íslenska
Ísland