4
Skáldsögur
Hrein og tær frásögn, sem er þroskasaga sex ára stelpu í litlu kauptúni á Íslandi og lýsir því hvernig frumbernskuáfall hefur áhrif á líf hennar fram á fullorðinsár. Bókin gefur innlit í liðinn tíma og dugnað fátæks fólks, sem lagði allt undir til að sjá sér og sínum farborða og koma börnum til manns. Þó ekki sé lagt mat á hlutina, er augljóst að sögumaður er jafnaðarmaður í öllum víddum þess orðs og svíður misskipting og ójöfnuður. Bernskubrekin eru sett í kómískt ljós og flest verður „krúttlegt“ í efnistökum höfundar, bæði peruávöxtur á ofni, svaðilför á sjó og kynskipti svo dæmi séu nefnd. Lesturinn skilur eftir hlýjar tilfinningar, þó ljóst sé að lífsbarátta fjölskyldu Hönnu og hennar sjálfrar hefur verið hörð á köflum.
© 2024 Storyside (Hljóðbók): 9789180846943
© 2024 Storyside (Rafbók): 9789180846950
Útgáfudagur
Hljóðbók: 17 januari 2024
Rafbók: 17 januari 2024

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 117 stjörnugjöfum
Hjartahlý
Sorgleg
Notaleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 117
Linda Linnet
21 jan. 2024
Mæli eindregið með þessari bók.
Anna
17 jan. 2024
Falleg og spennandi frásögn um uppvöxt og lífsbaráttu sögð á einlægan og glettinn hátt.
J
21 jan. 2024
Ekki bara góð saga, sem var gaman að hlusta á, en líka mjög áhugavert og sérstakt að fá innsýn inn í íslenskt samfélag verkafólks á þessum tíma og við hvaða aðstæður það lifði. Gat ekki hætt að hlusta þar til endanum var náð. Mæli algjörlega þessari bók.
Margrét
6 feb. 2024
Það var gott að hlusta á þessa bók og lesturinn er mjög góður
Birna
25 jan. 2024
Góð bók um baslið sem Íslendingar upplifðu á fyrrihluta síðustu aldar og lesturinn góður !
Anna
25 jan. 2024
Góð bók og fyrirtaks lestur.
Jóhanna
5 mars 2024
Yndisleg saga um basl, mikla vinnu og sorgir alþýðufólks á fyrrihluta og um miðja 20. öld. Kjör þessa fólks stendur ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Lesturinn mjög góður.
Lilja Hafdís
8 apr. 2024
Vá 🏅Lesturinn líka 🏆
Guðrún
19 feb. 2024
Áhugaverð og um leið sláandi, áhrif áfalla sem ekki má tala um skemma sálina. Frábær lestur Margrétar að vanda.
Helena
20 feb. 2024
Mjög góð og um margt áhugaverð saga.
Íslenska
Ísland