4
1 of 3
Glæpasögur
Frostrós er saga um mann sem smám saman missir allt ‒ fjölskyldu, samstarfsmenn, heimili, heimaborg og heimaland ‒ á meðan hann rannsakar morð fyrir stjórnvöld sem víla ekki fyrir sér að myrða milljónir manna.
Í Berlín á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar eru níu konur myrtar á meðan myrkvunartilskipun nasista í borginni stendur yfir. Morðin leggjast þungt á Kripo-rannsakandann Jóhann Braunmann og hann linnir ekki látum fyrr en málin eru upplýst. Eftir spennuþrungna leit hefur hann hendur í hári morðingjans ‒ og þó: eitt morðanna er ólíkt hinum og þar virðist ekki sami gerandi að verki.
Ung stúlka finnst myrt og líkið er umlukið snjó. Engum tekst að bera kennsl á stúlkuna sem Jóhann kallar Frostrós. Í skugga stríðs, valdabrölts og níðingsháttar nasista fer Jóhann vítt og breitt um borgina í rannsókn sinni á morðinu. Málið hefur persónuleg áhrif á Jóhann og fjölskyldu hans, og eftir því sem rannsóknin vindur upp á sig áttar hann á sig að ekki er allt sem sýnist.
Hvers vegna skipa valdamenn innan Nasistaflokksins honum að upplýsa morð á einni stúlku á meðan þeir heyja stríð og drepa milljónir á vígstöðvunum? Hvers vegna virðist sem svo að yfirmenn hans leyni hann upplýsingum? Rannsóknarlögreglumaðurinn Jóhann Braunmann, einn af þeim fyrstu til að skrá sig í Nasistaflokkinn, er farinn að efast um réttmæti Þriðja ríkisins og jafnframt er hann farinn að efast um stöðu sína og tilgang í lífinu. En þrátt fyrir það getur hann ekki hætt, hann verður að finna morðingja Frostrósar.
Mikill hluti sögunnar byggir á raunverulegum persónum og atburðum. Hér hefst fyrsti hluti af þremur.
© 2021 Storytel Original (Hljóðbók): 9789180245814
© 2021 Storytel Original (Rafbók): 9789180362856
Þýðandi: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 22 november 2021
Rafbók: 3 december 2021

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 584 stjörnugjöfum
Spennandi
Mögnuð
Upplýsandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 584
Hjördìs
2 dec. 2021
Frábær bók, algjörlega einstök. Og hann Hilmir Snær klikkar ekki í lestrinum frekar en öðru sem hann tekur að sér🤩
Sigrún
25 nov. 2021
Spennandi bók en hörmungatímar í Þýskalandi lesturinn er frábær
Stefanía
24 nov. 2021
Spennandi og vel lesin
Sigrún Guðna
25 nov. 2021
Góður lestur
Friðmey
30 jan. 2022
Góð bók en svolítið þung..lestur góður
Regína
19 dec. 2021
Langdregin, en samt sérstök. Góður upplestur
Valgerður
24 nov. 2021
Bíð eftir næstu bók.Mjög vel lesin og spennandi
Gunnar
30 okt. 2022
Fín saga. Pínu þurr á köflum er annars fín. Hilmir Snær er mjög fínn lesari
Guðbjörg
3 feb. 2024
Fín bôk og fínn lesari.
Ebba
7 sep. 2023
Sæmileg 🤔 ætla samt að halda áfram með næstu 🙄
Íslenska
Ísland