4.3
6 of 9
Glæpasögur
Á köldu haustkvöldi finnst kona hangandi í snöru í sumarbústað sínum á Þingvöllum. Fátt virðist á huldu um andlát hennar en þegar Erlendur fær í hendur upptöku af miðilsfundi sem konan fór á skömmu fyrir andlátið kviknar hjá honum þörf til að kynna sér sögu hennar og komast að því hvers vegna lífi hennar lauk svo sviplega og hörmulega. Um leið leita á hann gamlar og óleystar gátur um horfið fólk og draugar úr hans eigin fortíð. Erlendur Sveinsson er einhver dáðasta sögupersóna íslenskra nútímabókmennta; hrjúft yfirborð hins sérlundaða lögreglumanns í bland við mannúðina undir niðri hefur heillað lesendur hér heima og erlendis mörg undanfarin ár. Arnaldur hefur lengi verið langvinsælasti höfundur landsins og bækur hans hafa nú komið út í yfir þrjátíu löndum, víða náð inn á metsölulista og selst í milljónum eintaka. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun, tilnefningar og viðurkenningar fyrir sögur sínar og ber þar hæst tvo norræna Glerlykla, breska Gullrýtinginn og frönsku verðlaunin Grand Prix des Lectrices de Elle.
© 2021 VH (Rafbók): 9789979224327
Útgáfudagur
Rafbók: 15 februari 2021

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 20 stjörnugjöfum
Sorgleg
Mögnuð
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 1 af 20
Rafn
9 feb. 2022
Það er lítið um góðar sögur hérna hjá Storytel, hélt ég væri búinn að lesa þær allar. Svo datt ég um þessa og varð ekki fyrir vonbrigðum.
Íslenska
Ísland