3.4
Skáldsögur
Í almenningsgarði í Helsinki situr kona á bekk og þykist lesa bók meðan hún fylgist með hamingjusamri kjarnafjölskyldu viðra hundinn sinn. Óvænt sest önnur kona á bekkinn, kona sem hún þekkir mætavel úr sínu fyrra lífi í Úkraínu – lífi þar sem allt var mögulegt en ekkert sjálfsagt.
Í Hundagerðinu tvinnast líf allslauss innflytjanda í Helsinki saman við sögu Úkraínu eftir fall Sovétríkjanna; í umróti sem fylgdi sjálfstæði landsins reyndi hver að bjarga sjálfum sér og þegar spillingin heima fyrir mætti vestrænni græðgi urðu konurnar á bekknum á milli. Í valdabaráttu auðugra fjölskyldna varð líf þeirra einskis vert, frjósemin það eina sem þær höfðu að selja.
Sofi Oksanen er einstaklega glögg á mannlega tilveru og í þessari áhrifamiklu og spennandi sögu er stungið á viðkvæmum kýlum samfélagsins í beittum texta og vel byggðri frásögn. Hundagerðið er fimmta bók Sofi Oksanen sem kemur út á íslensku. Hér í frábærum lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur.
© 2022 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979346210
Þýðandi: Erla E. Völudóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 20 april 2022

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 74 stjörnugjöfum
Flókin
Upplýsandi
Hugvekjandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 74
Silla
29 apr. 2022
Sérkennilegt að hlusta á bók sem gerist að mestu í Úkraínu í ljósi atburða síðustu mánaða. Bókin er góð en helst til langdregin og mikið um endurtekningar, hefði getsð verið helmingi styttri.., lesturinn góður
Ingibjörg
2 maj 2022
Sofi Oksanan er frammúrskarandi sögumaður. Ég mæli með þessari átakanlegu sögu sem er sérstakt að lesa núna á meðan stríð er í Úkraníu.
T
3 sep. 2022
Frabær bók
Jóna
11 juni 2022
Vonbrigði því höfundur hefur skrifað mjög góðar bækur. Fyrri hluti góður en síðan of mikið endurtekningar og runglingslegt endurlit. Eintóna lestur.
Kristín
8 maj 2022
Mögnuð bók!
Lilja Hafdís
10 okt. 2023
Þessi rann vel í eyrun. Lesturinn frábær 🏆
Guðrún Soffía
13 sep. 2023
Upplýsandi, en sorgleg saga.
Kristin
12 dec. 2022
Frábær bók.
anna
12 maj 2022
Sérstök bók stríð núna stríð þá.Frábær lestur.
Ástríður
4 feb. 2023
Vel lesin og flókin flétta. Mæli með henni.
Íslenska
Ísland