Þúsundir raf- og hljóðbóka í símann þinn. Prófaðu frítt í 3 daga, engin skuldbinding og þú getur sagt upp hvenær sem er.
Prófa frítt3.8
Klassískar bókmenntir
Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma. Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.
Einstaklega hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.
Louisa May Alcott (1832–1888) var þekktur femínisti á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds. Litlar konur er frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Þegar hún var spurð að því af hverju hún hefði aldrei gengið í hjónaband gaf hún þá skýringu að hún hefði orðið ástfangin af fjölmörgum fallegum stúlkum en aldrei haft snefil af áhuga á körlum. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.
© 2020 Storyside (Hljóðbók): 9789179899318
© 2020 Ugla útgáfa (Rafbók): 9789935214393
Þýðandi: Páll Skúlason
Útgáfudagur
Hljóðbók: 25 februari 2020
Rafbók: 26 oktober 2020
3.8

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 264 stjörnugjöfum
Notaleg
Hjartahlý
Rómantísk
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 264
.
22 maj 2020
Gg ég er 10 og finst hún skemtileg hlusta á hana með mömmu Kv ísold
Hrafnhildur
26 feb. 2020
Skemmtileg 👌
Þorbjörg
9 mars 2020
Ágætis lesning gamaldags og heillandien eiginlega í flokki unglingabokavel lesin
Margrét Sæunn
12 juni 2020
Klassísk saga og þægileg lesning 🙂
anna
7 jan. 2021
Frábær lestur , sagan barn síns tíma og eldist illa.
null
9 apr. 2020
Frekar daufleg en hugljúf bók og góð tilbreyting frá lestri bóka um mannraunir, hörmungar, hrylling og voðaverk.
Þórdís
22 aug. 2020
Góð saga😄
katla
20 feb. 2021
Elska þessa bók :)
E
15 juli 2021
N Jk bb
Kristín Margrét
29 nov. 2021
Notaleg
Íslenska
Ísland