Þegar tveir miklir sagnameistarar sem hafa verið nánir vinir frá unglingsárum leggja saman í púkk er viðbúið að útkoman verði safarík og skrautleg. Hér segir Einar Kárason rithöfundur frá ævi Friðriks Þórs Friðrikssonar, allt frá bíódögum og sveitasögum bernskunnar til Óskarsverðlaunatilnefningar og kynna leikstjórans af stórstjörnum af ýmsu tagi. Lífsferill Friðriks Þórs hefur verið bæði ævintýralegur og öfgafullur. Hann hefur legið milli heims og helju á gjörgæsludeild í Þessalóníku við hliðina á sundurskotnum eiturlyfjabarón; verið handtekinn um nótt í Brasilíu sem grunaður hryðjuverkamaður; rekið umsvifamikið fyrirtæki og misst aleiguna; veitt marga stórfiska sem ekki minnka neitt að ráði í frásögnum þeirra félaganna; gert kvikmyndir um norræna kúreka, braggabúa, skyttur og fálkaþjófa, alheimsengla og einhverfu – og er þá fátt eitt talið. Hér er sagt frá fjölmörgum litríkum karakterum, sumum heimsþekktum, öðrum af botni mannfélagsins og ýmsum þar á milli – en alltaf tekst þeim Friðriki og Einari að draga fram gamanmál eða örlagasögur sem gera þá minnisstæða.
© 2022 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979344438
© 2022 Mál og menning (Rafbók): 9789979341857
Útgáfudagur
Hljóðbók: 8 december 2022
Rafbók: 8 december 2022

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 105 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Fyndin
Notaleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 105
Margrét
1 mars 2023
Ótrúlegt hvað maðurinn kemst yfir😆 Gaman að fræðast um hans lífshlaup!
Þórný
23 mars 2023
Skemmtileg bók, ég hló oft. Friðrik Þór hefur frá mörgu að segja 😊
Pétur
6 jan. 2023
Skemmtileg og góður lestur.
Tómas Hallgrímsson
27 dec. 2022
Frábærlega skemmtileg. Tveir sagnameistrar
Þórunn
26 mars 2023
Áhugaverð bók og gaman að rifja upp liðna atburði
Margrét Lilja
13 dec. 2022
Stórkostleg saga af skemmtilegum manni og vel lesin 💕🥰
Eiríkur
21 dec. 2022
Skemmtileg og fróðleg. Hlustaði nánast í einum rykk.
Birna
6 feb. 2023
Skemmtileg lifssaga og vel lesin
Viðar
22 dec. 2022
Upplýsandi um afkastamikinn, merkan Íslending á sviði kvikmyndaiðnaðar.
hólmfríður
11 dec. 2022
Mjög skemmtileg og vel lesin ❤️
Íslenska
Ísland