Þúsundir raf- og hljóðbóka í símann þinn. Prófaðu frítt í 3 daga, engin skuldbinding og þú getur sagt upp hvenær sem er.
Prófa frítt3.7
3 of 7
Glæpasögur
Kvöld eitt stígur barnshafandi kona út úr bílnum sínum sannfærð um að hún hafi keyrt á mann. Í myrkrinu er ekki sálu að sjá. Innan tíðar er kvöldkyrrðin rofin af lögreglusírenum og hefst þá leit að manninum. En hann finnst hvorki lífs né liðinn. Konan virðist hafa séð ofsjónir.
Þetta undarlega atvik reynist aðeins upphafið að margflókinni ráðgátu sem rannsóknarlögreglukonan Maria Wern verður að leysa því ekki líður á löngu þar til kona finnst látin í baðkari. Hún var með barni og allt bendir til þess að um sjálfsvíg sé að ræða. En á líkinu eru annarleg sár og Maria er sannfærð um að konan hafi ekki látist af eigin völdum. Þegar fórnarlömbunum fjölgar ásamt barnshafandi konum sem hrjáðar eru af skynvillum og undarlegum sárum sem vilja ekki gróa beinast öll bönd að dularfullri glasafrjóvgunarstofnun. Sömu stofnun og besta vinkona Mariu Wern hefur leitað til. Tekst Mariu Wern að upplýsa ráðgátuna áður en fleiri konur falla í valinn?
Glæpasagnahöfundurinn Anna Jansson dregur lesendur á ný inn í uggvænlegan söguheim þar sem sérkennileg morð og stórundarlegir atburðir skyggja á lífið í friðsælum sænskum smábæ. Megi dauðinn sofa er grípandi glæpasaga þar sem hættur leynast við hvert fótmál, leyndarmál líta dagsins ljós og heldur hún lesandanum föngnum fram á síðustu stundu.
© 2023 Storyside (Hljóðbók): 9789180629348
© 2023 Storyside (Rafbók): 9789180629355
Þýðandi: Friðrika Benónýsdóttir
Útgáfudagur
Hljóðbók: 14 augusti 2023
Rafbók: 14 augusti 2023
3.7

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 182 stjörnugjöfum
Spennandi
Mögnuð
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 182
Þórhalla
24 aug. 2023
Allt í lagi hrikalega langdregin 🫣Lestur mjög góður 🤩
Lilja
16 aug. 2023
Meiriháttar góð bók og frábær lesari. Takk innilega fyrir mig ❤️
Svala Sigríður
15 aug. 2023
Finn höfundur sem klikkar ekki. Sama er um lesturinn að segja.
Stefanía
17 aug. 2023
Spennandi og góður lestur
Soffía
15 aug. 2023
Of mikið drama en samt frekar spennandi og lesturinn góður
Lilja Hafdís
15 aug. 2023
Fullkomin frá fyrstu síðu 🏆
Sigrún
15 feb. 2024
Mjög spennandi og vel lesin
Sigurður
30 apr. 2024
Langdregin
♥️⚘️Þórey
11 sep. 2023
Svaka góð og lesari góður
G
18 aug. 2023
👎
Íslenska
Ísland