4.4
5 of 7
Glæpasögur
Á vætusömum vordegi finnst kona myrt í Norrköping eftir að hafa verið saknað í tvo sólarhringa. Líkið finnst á floti í ánni sem rennur í gegnum borgina. Tveimur dögum áður fannst annað lík í ánni, önnur kona myrt á sama hátt. Þegar þriðja konan hverfur óttast lögreglan að raðmorðingi sé kominn á kreik. Jana Berzelius saksóknari fær málið í hendur, dyggilega studd af rannsóknarlögreglumönnunum Henrik Levin og Miu Bolander. Fljótt tengist rannsókn þeirra eldra máli ungs manns sem er vistaður á réttargeðdeild eftir að hafa myrt fjölskyldu sína. Á þeirri sömu deild dvelur líka Danilo Peña – maðurinn sem Jana Berzelius vill losna við úr lífi sínu – hvað sem það kostar.
© 2021 mth útgáfa ehf (Hljóðbók): 9789935501134
© 2021 mth útgáfa ehf (Rafbók): 9789935501141
Þýðandi: Kristján H. Kristjánsson
Útgáfudagur
Hljóðbók: 28 maj 2021
Rafbók: 28 maj 2021

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 1049 stjörnugjöfum
Spennandi
Mögnuð
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 1049
Kristín
29 maj 2021
Spennandi bók eins og ein af mínum uppáhalds seríum. Kristján er fínn lesari NEMA þegar hann les fyrir Miu Bolander! Ég þurfti að taka á öllu mínu til að hætta ekki að hlusta, svo óþolandi var karakterinn sem hann setti í munn Miu. Miðað við hvernig hún er látin hljóma þá skil ég ekki hvernig fólk getur unnið með henni. Hún er látin hljóma eins og nefmælt, tuðandi og leiðinda kelling, sem er alls ekki mín upplifun af henni þegar ég las fyrstu bókina sjálf. Flestar persónur hljómuðu vel, nema þegar löggan hitti fyrir kvenpersónu sem vill ekki aðstoða hana. Þá hljómar hún eins og Mia-leiðindakelling. Í eitt annað skipti heyrði ég sömu raddbeytingu og það var þegar ein persóna hermdi eftir orði annarrar á þann hátt sem oft er gert þegar viðkomandi vill gera lítið úr orðum hins.Ég vona að Kristján endurskoði þann stíl sem hann gefur Miu. Hún fer versnandi með hverri bók! En að þýðingunni; hvað er PLAST-skurðlæknir? Ég geri ráð fyrir að átt hafi verið við lýtalækni (plastic surgeon)
Anna Bentína
2 juni 2021
Góð bók og Kristján Franklín góður lesari. Vinsamleg ábending að tóna aðeins niður vælu röddina í Míu.
Ida
3 juni 2021
Mjög spennandi. Upplestur mjög góður, en ákaflega þreytandi þegar kemur að aðalsöguhetjunni því málrómur hennar “lesandans) er skrækur og ömurlegur.
Jónína
2 juni 2021
Lesari mætti bera meiri virðingu fyrir konum - en leiðinlegur málrómurinn sem hann notaði þegar hann setti sig í hlutverk kvennanna var afskaplega þreytandi.
Ebba
3 juni 2021
Frábær og spennandi sería og Kristján góður lesari ef hann sleppti þessum leikrænu tjáningum á kvennpersónunum allt of væmið 😉
Sigrún
11 juni 2021
Spennandi glæpasögu og ágætlega lesin, nema hvað það pirraði mig hvað Mía var gerð væluleg - en að öðru leyti fínt að reyna að líklega söguna...
Kristín
16 juni 2021
Ágætis afþreying og lestur en túlkun á Miu leiðinleg.
Rósa
7 juni 2021
Spennandi, verð þó að taka undir að mér leiðist túlkun lesara á Míu. Hefði annars fengið 5 stjörnur
Sælín
8 juni 2021
Bókin og efni hennar ágætt, en ég skil ekki lesaran að gera allt kvennfólkið fúllint með leiðinlegum leiklestri, annars er lesurinn fínn.
Sigrun
9 juni 2021
Frábær bók, en lesturinn dregur niður. Ég eins og mörgum öðrum finnst Kristján Franklín Magnús lesa karater Míu óþolandi, og flestir kvenkarakterarnir í bókinni fá einhvern vælutón í röddina þegar hann les þá.
Íslenska
Ísland