Þúsundir raf- og hljóðbóka í símann þinn. Prófaðu frítt í 3 daga, engin skuldbinding og þú getur sagt upp hvenær sem er.
Prófa fríttÍsland fyrri tíðar. Nútíminn að verða til. Mannlífið á Ísafirði og Þingeyri. Þorpið í Þingholtunum og andstæður á Melunum. Æskuvinir í skólunum við Lækjargötu. Sumir urðu valdamenn. Móðirin í fjarska. Erfiðleikar og gleðistundir.
RÆTUR birtir nýjar hliðar á forseta sem flestir telja sig þekkja vel. Meitluð mynd, sannfærandi, hreinskilin og opinská. Í Sögum handa Kára fjallaði Ólafur Ragnar um frægðarfólk í framandi löndum. Hér leitar hann upprunans og svara við fjölmörgum spurningum: Hvað markaði brautir lífsins? Hverjir mótuðu strákinn að vestan? Hvar er innri mann að finna? Óvænt bók sem lengi verður lesin.
© 2021 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979345633
Útgáfudagur
Hljóðbók: 26 oktober 2021
Ísland fyrri tíðar. Nútíminn að verða til. Mannlífið á Ísafirði og Þingeyri. Þorpið í Þingholtunum og andstæður á Melunum. Æskuvinir í skólunum við Lækjargötu. Sumir urðu valdamenn. Móðirin í fjarska. Erfiðleikar og gleðistundir.
RÆTUR birtir nýjar hliðar á forseta sem flestir telja sig þekkja vel. Meitluð mynd, sannfærandi, hreinskilin og opinská. Í Sögum handa Kára fjallaði Ólafur Ragnar um frægðarfólk í framandi löndum. Hér leitar hann upprunans og svara við fjölmörgum spurningum: Hvað markaði brautir lífsins? Hverjir mótuðu strákinn að vestan? Hvar er innri mann að finna? Óvænt bók sem lengi verður lesin.
© 2021 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979345633
Útgáfudagur
Hljóðbók: 26 oktober 2021
Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 402 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Notaleg
Hjartahlý
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 402
Bergljot
28 okt. 2021
Skemmtileg frásögn og upplýsandi en yfirlestur og ritstjórn ábótavant - kannski kemur það ekki að sök en hefði gert voða bók betri
Kristján G.
10 dec. 2021
Ólafur Ragnar Grímsson er alltaf góður skýr og jákvæður. Góður upplestur og góð bók.
Sigrun
20 nov. 2021
Áhugaverð og upplýsandi bók um fyrrum forseta.Mæli með.
Gummi
5 nov. 2021
Áhugverð frásögn með of miklum endurtekningum. Lestur Ólafs er upplagður til að hlusta á einum komma fimm
Kristinn Ágúst
12 nov. 2021
Hreinskilin bók, óvænt sýn, mennsk mynd, viðkvæmir strengir mikillar hörpu hafnir á loft.
Pétur
2 apr. 2023
Upplýsandi endurminning og lestur góður.
Helena
10 jan. 2022
Mjög góð og heiðarleg upplýsandi saga um jákvæðan og merkilegan karakter. Vekur upp ymislegt sem hefur fallið í gleymsku, um öll pólitísku tengslin á Íslandi eins og Kolkrabbann o fl. Mætti laga endurtekningar. Góður og þægilegur lestur hjá Ólafi Ragnari.
Hulda
5 jan. 2022
Nokkuð góð, gefur henni aukastig að höfundur las sjálfur. Ólafur Ragnar er merkismaður.
Haukur Már
30 mars 2022
Þetta er ansi skemmtileg bók. Höfundur er skemmtilega kaldhæðinn, líka í eigin garð. Margir munu ugglaust kalla það yfirlæti og sjálfumgleði, en undir bærist grínaktugur tónn. Eina sem ég set út á er flutningurinn; ég er ekki hrifinn af þessum spjalltóni með undarlegum hléum og allt að því drafandi rödd.
Asdis
2 nov. 2021
virkileg góð bók - eins og ég er yfirleitt óánægð með þegar höfundar lesa sjálfir þá finnst mér rödd Ólafs fullkomna söguna
Íslenska
Ísland