4.1
2 of 4
Fantasía-og-scifi
Börn hverfa án ummerkja í myrku skammdeginu og lögreglan er ráðalaus. Þegar fjórða barnið hverfur eftir að faðir þess hefur verið myrtur finnast vísbendingar sem taka af allan vafa um að yfirnáttúruleg öfl séu hér að verki.
Lögreglan fær huldumiðilinn Bergrúnu Búadóttur til liðs við sig og fljótlega slæst Brá, tvítug dóttir Bergrúnar, í hópinn. Þær mæðgur fara ásamt sérfræðingum um vættir og fjölkynngi af ýmsu tagi yfir í Hulduheim í leit að börnunum. Þar upphefst æsispennandi atburðarás með óvæntri framvindu og hrollvekjandi átökum við stórhættulegar vættir sem hafa verið fegraðar í kvæðum og sögum í Mannheimi.
Sólhvörf er grípandi glæpafantasía þar sem norræna spennusagan og íslensk þjóðtrú fléttast saman á einstakan hátt.
Emil Hjörvar Petersen hefur sannað sig sem einn helsti fantasíuhöfundur Íslands. Eftir hann liggur rúmur tugur skáldsagna þar sem hann sýnir fádæma breidd og fléttar gjarnan saman sagnahefðum. Þar á meðal eru Saga eftirlifenda, Hælið og Dauðaleit. Sólhvörf er önnur bókin í hinum dáða bókaflokki Handan Hulunnar sem notið hefur mikilla vinsælda og hlotið einróma lof gagnrýnenda.
★ ★ ★ ★ „Frábær bók sem tvinnar saman íslenskum þjóðsögum við hversdagsleikann eins og við þekkjum hann." Erla Jónsdóttir, Nörd norðursins.is
„Vel skrifuð og spennandi glæpafurðusaga sem vinnur með þjóðsagnaarfinn á áhugaverðan og skapandi hátt." Brynhildur Björnsdóttir, Fréttablaðinu
„Mjög vel heppnuð og grípandi ... einstaklega skemmtileg lesning." Snæbjörn Brynjarsson, Stundin.is
© 2019 Storyside (Hljóðbók): 9789179232917
© 2024 Storyside (Rafbók): 9789180856966
Útgáfudagur
Hljóðbók: 19 augusti 2019
Rafbók: 23 april 2024

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 224 stjörnugjöfum
Mögnuð
Spennandi
Ófyrirsjáanleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 9 af 224
Edvard
1 jan. 2023
Mjög spennandi
♥️⚘️Þórey
15 okt. 2021
Mjög góð bók og lesari góð
María
18 feb. 2024
fínasta bók.
Ragnhildur
19 okt. 2021
Frábær bòk og vel lesin!
Arnar
10 nov. 2021
Algjör snilld og vel lesin
Þórunn
15 okt. 2021
Frábær bòk mæli með henni, gat ekki látið hana frá mér fyrr en hún var búin. Vel lesinn 🙂
Þórunn
4 apr. 2021
Frábær bók hlakka til að hlusta á næstu 👍
Herborg
25 feb. 2021
Mjög góð 🤗
Eva
12 okt. 2023
Frábær saga og snilldar lesari.
Íslenska
Ísland