4.6
Skáldsögur
Sjálfstætt fólk er saga einyrkjans Bjarts í Sumarhúsum og veitir einstæða innsýn í líf íslensku þjóðarinnar á fyrri hluta aldarinnar. Þegar sagan kom fyrst út var hún glóandi innlegg í stjórnmálabaráttu samtímans og mjög umdeild, en telst nú til mestu dýrgripa í menningarsögu Íslendinga. Til að halda sjálfstæði sínu berst Bjartur í Sumarhúsum harðri baráttu við sjálfan sig, fjölskyldu sína, valdhafana og jafnvel höfuðskepnurnar. Í bókinni eru þessi ályktunarorð dregin af lífsstríði hans: „Sagan af Bjarti í Sumarhúsum er saga mannsins, sem sáði í akur óvinar sins alt sitt líf, dag og nótt. Slík er saga sjálfstæðasta mannsins í landinu.“ Sjálfstætt fólk er í hópi vinsælustu skáldverka Halldórs Laxness og var kosin besta skáldsaga aldarinnar árið 1999. Sagan kom fyrst út á árunum 1934-35, í tveimur hlutum.
© 2022 VH (Hljóðbók): 9789979226000
Útgáfudagur
Hljóðbók: 1 december 2022

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 99 stjörnugjöfum
Mögnuð
Sorgleg
Hjartahlý
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 99
Guðríður Eldey
17 jan. 2023
Lestur Jóhanns Sigurðarsonar er algjörlega frábær. Gaf þessari klassísku bók enn meiri dýpt að hlusta á Jóhann gefa Bjarti líf og rödd. Á pari við lestur Gísla Halldórssonar á góða dátanum Svejk.
Heiðar Birnir
10 jan. 2023
Frábær lestur
Hilmar
12 juli 2023
Fyrsta bók sem ég hlusta á eftir Laxnes og varð alveg heillaður. Jóhann glæðir hana lífi á einstakan hátt.
Ísólfur Gylfi
8 jan. 2023
Einstölk saga og listaverk. Upplestur Jóhanns Sigurðarsonar er einstaklega góður og dregur fram persónur og hughrif. Ég ætla fljótlega að hlusra á bókina fljótlega aftur.
Guðfinna
2 apr. 2023
Meiriháttar lestur hjá Jóhanni. Nú þarf að hlaða í Íslandsklukkuna. Búin að bíða lengi eftir Laxness á Storytel.
Ragnhildur
11 mars 2023
Lesturinn stórkostlegur 😊
Hjörtur
6 feb. 2023
Meistarastykki!Lesturinn að sama skapi frábær!!
Svanhildur
21 mars 2024
lesturinn er einstaklega góður, þetta er tvöfalt listaverk, sagan sjálf og svo lestur Jóhanns Sigurðarsonar
Yes
21 feb. 2024
Read it for school, autobook but the best way to experience
Guðveig
23 mars 2023
Dásamlegur lestur Jóhanns Sigurðarsonar á þessu snilldarverki Laxness
Íslenska
Ísland