Þúsundir raf- og hljóðbóka í símann þinn. Prófaðu frítt í 3 daga, engin skuldbinding og þú getur sagt upp hvenær sem er.
Prófa frítt3.7
3 of 3
Glæpasögur
Fimmtudagur rennur upp og hlutirnir eru óðum að færast í venjulegar skorður. Nema hvað Fimmtudagsmorðklúbburinn virðist hafa sérstakt lag á að laða að sér vandræði. Tíu ára gamalt mál – það sem þeim finnst allra best – leiðir þau að frægum þáttastjórnanda og morði án nokkurs líks né annarra vísbendinga. Og Elizabeth hefur orðið sér úti um nýjan óvin, sem heimtar að hún drepi, eða verði ellegar drepin sjálf. Skyndilega er gamla morðmálið orðið glænýtt. Á meðan Elizabeth glímir við samvisku sína (og skotvopn) fylgja Joyce, Ron og Ibrahim eftir vísbendingum með hjálp frá nýjum og gömlum vinum. Nær gengið að leysa gátuna og bjarga Elizabeth áður en morðinginn lætur aftur til skarar skríða?
Þriðja ævintýri Fimmtudagsmorðklúbbsins teygir sig frá fínni heilsulind yfir í fangaklefa með espressó-kaffivél og í lúxusþakíbúð í skýjakljúfi, þrungið snilld, leynimakki og þeim ómótstæðilegum töfrum sem lesendur mega búast við frá metsölubókum Richards Osman.
© 2023 Storyside (Hljóðbók): 9789180846424
© 2024 Drápa (Rafbók): 9789935530578
Þýðandi: Ingunn Snædal
Útgáfudagur
Hljóðbók: 6 december 2023
Rafbók: 20 februari 2024
3.7

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 31 stjörnugjöfum
Hjartahlý
Fyndin
Spennandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 7 af 31
Anna María
6 dec. 2023
Mjög leiðinleg.bók og þessi lesari a ekki að.lesa glæpasogur.
Sigurbjörg G.
11 dec. 2023
Hreint og beint elska þessar bækur. Dillandi húmorinn fær mig til að hlægja upphátt. Finnst rödd og lestur Helgu eiga fullkomlega við sögupersónurnar og þýðing Ingunnar frábær.
Ingibjörg
7 jan. 2024
Langloka, fullt af leiðinlegu fólki. Hræðilegur lestur.
Elinborg
6 dec. 2023
Sæmileg
Anna
15 mars 2024
Fràbær. Skemmtilega öðruvísi glæpasaga. Ger ekki beðið eftir því að fjórða bókin i þessum flokki komi inn
Lilja Hafdís
4 feb. 2024
Rosalega skemmtileg 🤩 Lesturinn gæti ekki verið betri fyrir þessa seríu um fimmtudags morðklúbbinn 🏆
Ása Birna
22 dec. 2023
Spennandi og skemmtileg og flottar sögupersónur með skrautlega fortíð sem hafa engu gleymt þrátt fyrir að vera komin af léttasta skeiði. Lesturinn góður.
Íslenska
Ísland