4.4
Skáldsögur
Villtir svanir er í senn kvennasaga, fjölskyldusaga og mannkynssaga. Höfundurinn, Jung Chang, segir sögur fjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja kynslóða kvenna: sjálfrar sín, móður sinnar og ömmu.
Lesandinn fær hér ómentanlega og óvenjulega innsýn í sögu Kína á þessari öld – en um leið er þetta nærfærin og áhrifamikil lýsing á örlögum einstaklinga sem urðu fórnarlömb maóismans. Villtir svanir er um leið saga um mannlega reisn, hetjuskap og egurð í miðri vargöldinni.
Bókin hefur farið sigurför um öll Vesturlönd frá því hún kom út árið 1991 og hefur trónað á metsölulistum víða um lönd. Gagnrýnendur hafa hlaðið bókina lofi og jafnað henni við sögulegar skáldsögur eins og þær gerast bestar – nema hér er hvert orð dagsatt.
Hjörleifur Sveinbjörnsson íslenskaði. Hér í frábærum lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur
© 2023 Mál og menning (Hljóðbók): 9789979348894
Þýðandi: Hjörleifur Sveinbjörnsson
Útgáfudagur
Hljóðbók: 6 juni 2023
Merki

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 48 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Mögnuð
Hugvekjandi
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 48
Hrafnhildur
13 juni 2023
Frábær 🤩🤩
Unnur
24 aug. 2023
Mögnuð bók, vel skrifuð , lesari góð.
Sigr
21 juni 2023
Mögnuð, sorgleg og mikil mannvonska mjög vel lesin
Svala Sigríður
1 sep. 2023
Ótrúlegt hugrekki á hræðilegum tímum. Vel skrifuð bók og hugbekjandi. Lestur góður.
Ragnhildur
4 nov. 2023
Mögnuð bók um tíma í Kína sem maður vissi að hefðu verið erfiðir en mann óraði ekki fyrir að hefðu verið sá hryllingur sem fram kemur í bókinni. Enn einu sinni er maður leiddur í sannleikann um hversu grimm mannskepnan getur verið. Mjög vel lesin.
anna
11 juni 2023
Ótrúleg saga,vel skrifuð og einlæg. Í ríkjum einræðisherrar er sagan alltaf lík grimmd,ljót og viðbjóður, þvílíkur dugnaður og harka í fólkinu,þeim sem héldu þetta út.
Kristín
8 aug. 2023
Las þessa bók þegar hún kom út á íslensku og hlustaði á hana núna. Hún er mjög vel skrifuð og afar áhrifarík. Fjallar um ömurlegt tímabil í sögu Kína, mikla mannvonsku og hvernig hægt er að fara með heila, risastóra þjóð í skjóli einræðis.
Helga
5 juli 2023
Einlæg og einstaklega vel skrifuð og hjartahlý fjölskyldusaga sem gerist á tímum einræðis, valdagræðgi og mannvonsku í Kína.
Oskar
28 aug. 2023
Merkileg bok og froðleg
Þórdís
28 sep. 2023
Ótrúleg saga. Mjög fræðandi
Íslenska
Ísland