Virkir dagar - Saga Sæmundar Sæmundssonar skipstjóra, skráð eftir sögn hans sjálfs. Í þessari sígildu ævisögu skipstjórans Sæmundar Sæmundssonar kynnumst við aðstæðum og lífsbaráttu Íslendinga á seinni hluta 19. aldarinnar. Sögusvið fyrri hluta verksins er að miklu leyti Eyjafjörðurinn og er frásagnargleði Guðmundar G. Hagalín mikil. Bókin er skráð eftir sögu Sæmundar sjálfs, og á það eflaust sinn þátt í hversu lífleg frásögnin er. Upphaflega var bókin í tveimur bindum, en hér birtist sagan í heild sinni. Sæmundur fæddist harðindaárið 1869 og lifði hann afar viðburðaríku lífi. Um þær mundir var víða horfellir á búpeningi og meiri og minni sultur hjá almenningi. Fjögurra ára var Sæmundur orðinn föðurlaus. Níu ára kemst hann í vist að Látrum, fær í fyrsta sinn nóg að borða, og verða nú skjót umskipti á drengnum og varð hann hinn gerfilegasti maður. 1882, þá einungis 13 ára gamall, rær hann haustróðra upp á fullan hlut og 1889 er hann orðinn stýrimaður á hákarlaskipi. Síðar verður hann skipstjóri á hákarlaskipi og mikill aflamaður. 1902 gerist hann skipstjóri á þorskveiðiskipi og veiðir síld í reknet á opnum báti í Eyjafjarðarál. Árið 1904 er seglskipið Hjalteyrin keypt af Norðmönnum að frumkvæði Sæmundar, og árið 1906 er sett hjálparvél í skipið. Hann missti konu sína frá mörgum börnum þeirra árið 1908 og ári síðar bregður hann búi og flytur frá Stærra-Árskógi. 1911 kvænist hann síðari konu sinni. 1921 sest Sæmundur að á Ísafirði og gerist hafnarvörður, allt til 1944. Höfundurinn, Guðmundur G. Hagalín, bjó um tíma á Ísafirði. Þar kynntist hann Sæmundi og þegar hann tók í hönd hins aldna garps minnist hann þess með orðunum: „Höndin sem mér var rétt, var hrjúf, en hlý, og svo var hún mikil um sig að mín hvarf í lófann.” Þegar Ísafoldarprentsmiðja réðst í að gefa út þetta mikla verk í heild sinni á árunum 1936-1938 varð höfundi að orði: „Vel væru okkur Sæmundi launaðir Virkir dagar, ef ljóminn af manndómi hans, skyldurækni og starfsgleði mætti örva til dáða unga lesendur.” Ætla má að bókin hafi hitt Íslendinga í hjartastað því fyrsta upplag hennar seldist upp á fáum mánuðum.
© 2021 Lesbók (Hljóðbók): 9789935222671
Útgáfudagur
Hljóðbók: 20 december 2021

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 232 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Mögnuð
Notaleg
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 232
Rafn
3 jan. 2022
Frábær sga og ekki spillir lesturinnhjá honum Arnari.
Hákon Jónas
6 feb. 2022
Góð bók
Smári
8 jan. 2022
Góð bók.
Margrét
7 aug. 2023
Fróðleg bók og mjög góður lestur
Snæbjörn
12 juni 2022
Mjög áhugaverð og vel lesin
Hrafngerður
2 dec. 2022
Mögnuð
Reimar
13 mars 2024
Svolítið langdregin
Halldór
7 jan. 2022
Mjög áhugaverð saga sem nútímafólk hefur gott á af að lesa ( hlusta á )
Þórunn
27 jan. 2022
Frábær lestur hjá Arnari.
anna
28 jan. 2022
Vel skrifað verk GGH um lífshlaup landans á fyrri tíð. Og enginn betri lesari í þetta verk en Arnar Jónsson.
Íslenska
Ísland