Halldór Laxness var síðasta þjóðskáld Evrópu. Hann var ekki þjóðskáld af því að öll íslenska þjóðin elskaði hann eða fyndist jafn mikið til um allt sem hann sendi frá sér. Því fór fjarri. Hann var þjóðskáld af því næstum öll þjóðin lét sig varða hvað hann skrifaði.
Verkum hans var oft fagnað og margir reiddust þeim – en engum var sama. Hann speglaði í lífi sínu og bókum þá öld sem hann lifði og lifði sig inn í, öld öfganna. Þannig var hann sjálfur: Oft einstaklega alúðlegur og háttvís í framkomu en um leið ótrúlega djarfur og hvassyrtur penni. Þeir voru ólíkir í honum, skáldið og maðurinn, því hann var maður andstæðna, Íslendingur og heimsborgari, fagurkeri og baráttumaður. Hann var stór í hugsjónum sínum og verkum – og mistökum. Metnaður hans var mikill og stundum tillitslaus. En skáldverk sín samdi hann af innri þörf og ekki til að þóknast neinum.
Halldór Guðmundsson hefur talað við fjölda manns, leitað í bókum, skjala- og bréfasöfnum, hér á landi og erlendis, að heimildum og vitnisburði um viðburðaríkt og þverstæðukennt líf Halldórs Laxness. Myndin sem hann dregur upp af viðfangsefni sínu er fræðandi og skemmtileg en umfram allt ögrandi og óvænt.
Íslensk þjóð lét sig frá upphafi varða gerðir og skrif síns mesta rithöfundar. Í þessari bók fær hún loksins að kynnast manninum sjálfum.
Halldór Guðmundsson hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina árið 2004.
© 2021 JPV (Hljóðbók): 9789935291486
© 2021 Vaka-Helgafell (Rafbók): 9789935112682
Útgáfudagur
Hljóðbók: 12 maj 2021
Rafbók: 12 maj 2021
Merki

Stígðu inn í heim af óteljandi sögum
Heildareinkunn af 138 stjörnugjöfum
Upplýsandi
Mögnuð
Hjartahlý
Náðu í appið og taktu þátt í umræðum og stjörnugjöf
Sýnir 10 af 138
Hólmfríður
18 juni 2021
Vel skrifuð og vel lesin
Ástþór
22 juni 2021
Einstaklega áhugaverð aldarfarslýsing og ævisaga. Velti því fyrir mér í hvaða ótætings Sviðinsvík íslenskt þjóðfélag hefði endað í með öllum sínum "þríhrossum" ef HKL hefði ekki notið við. Kærar þakkir.
Brynja
12 juni 2021
Frábær
Kristjan
24 maj 2021
Vanda og mikið verk um einstakan mann .
Soffía
17 juni 2021
Vel lesin bók
Reynir
1 juni 2021
Afbragð. Lestur hnökralaus.
Valgerður
21 jan. 2022
Dásamlegt að hlusta á þessa ævisögu Halldórs Laxnes
Kristinn Ágúst
6 aug. 2021
Marglaga snilldarverk: ítarleg ævisaga, sálfræðistúdía, heillandi aldarfarslýsing, saga átaka við hugmyndir og veraldleg máttarvöld. Lesturinn er mjög góður.
Karl
19 juli 2021
Vel skrifuð og vönduð efnistök
Guðrún
18 maj 2022
Naut þess að hlusta á þetta stórvirki. Nafnarnir góðir.
Íslenska
Ísland